La Rotonda íbúðarhótelið er staðsett í hverfi sem heitir Aqua Marina sem er rétt fyrir utan borgina Torrevieja. Íbúðin er með tveim svefnherbergjum og svefnsófa í stofu, gistiaðstaða fyrir allt að 6 manns. Einkaþaksvalir fylgja íbúðinni. Mjög gott útsýni. Íbúðin er mjög vel búin í alla staði. Loftkælingar í öllum rýmum sem bæði hita og kæla, þvottavél, handklæði, sjónvarp og margt fleira. Móttaka er á inngangshæð sem opin er allan sólarhringinn. Eins er veitingastaður og bar við sundlaugina. Bílastæði í kjallar fylgir. Lyfta er í húsinu. Sjá íbúðinna nána á www.spann.is Gildir til 1 apríl 2009 og frá 18 apríl 2009 til 15 maí 2009.
Aqua Marina er fallegt hverfi sem jafnan er talið eitt best staðsetta hverfi Costa Blanca strandarinnar. Gaman er því frá því að segja að Costa Blanca er ein af þrem og sú stærsta sem liggur að Spáni. Í hverfinu er stutt í alla þjónustu, svo sem fjölda veitingastaða, vínveitingahúsa, bankastofnana, matvörumarkaða sem eru opnir allan sólarhringinn, heilsugæslu, apótek og margt fleira enda er Aqua Marina oft nefnt "Draumastaður norðan miðjarðahafsins" á beinþýddri íslensku. Falleg gönguleið er meðfram strandlengjunni sem er nær alveg að Torrevieja í norður og til Mar Menor sem liggur að La Manga til suðurs. Aðeins eru 300m að sjó en aðeins 5 mínútur tekur að ganga að fallegri sandströnd. Falleg smábátahöfn er í 10 mínútna gönguleið. Hægt er að leigja hjólabáta og sjóþotur. Til að komast til Aqua Marina - Torrevieja þarf að fljúga til Alicante. Flogið er til Alicante allan ársins hring. Á veturnar flýgur Iceland Express tvisvar í vikur en á sumrin eru átta flugvélar sem flytja sólþyrsta Íslendinga til Alicante. Aðeins eru 40km til Torrevieja borgar þar sem Aqua Marina eða um 35 mínútur miða jafna umferð.
Verð aðeins 490 evrur vikan.
Vinsamlega sendið fyrirspurn á worldfor2@worldfor2.is um óskir á dagsetningum. Fyrstur kemur fyrstu fær. Njótið kosta World for 2 - Tvöföld ánægja einfalt verð.
[ Til baka ]