Ferðalög

Menning

Ýmislegt

Heilsurækt

Veitingastaðir

Skemmtistaðir

Snyrting

Knattspyrna

Gisting

Kaffihús og Ís

Take away



Hvað er World for 2?

World for 2 er alþjóðlegur markaðsklúbbur sem er starfræktur víða í heiminum fyrir fólk sem hefur það að markmiði að njóta lífsins betur - fyrir minna fé. Öll tilboð World for 2 eru svokölluð „tveir fyrir einn tilboð. Á veitingastöðum getur korthafi komið með gest með sér, en greitt aðeins fyrir dýrari máltíðina. Hjá þjónustuaðilum, s.s. hárgreiðslustofum og snyrtistofum er oft um það að ræða, að korthafi kemur tvisvar og kaupir þjónustu, en greiðir aðeins fyrir annað skiptið. Sem sagt tvöföld ánægja á einföldu verði með World for 2.

World for 2 er kjörin leið til aukins sparnaðar...
Ef þú t.a.m. býður maka þínum út að borða gæti maturinn einn og sér kostað 7.000 krónur. Þú greiðir kr. 3.500. Þannig færðu árgjaldið nær allt til baka með því að nota kortið í eitt skipti. Allt umfram er þinn hagnaður. Svo einfalt er það!

Hvers vegna eru þjónustu aðilar okkar reiðubúnir að láta þig og gest þinn greiða aðeins fyrir annan ykkar?
Jú, það er vegna þess að þeir eru meðvitaðir um að besta auglýsingin er að fá fólkið á staðinn. Í framhaldi af því geta þeir sýnt framtíðar-viðskiptavinum hvað er á boðstólum, í stað þess að segja aðeins frá því eins og gerist með öðru formi auglýsinga. Fyrirtæki í samstarfi við World for 2 skuldbinda sig til að veita korthöfum sömu þjónustu og öðrum gestum. Það er hagur allra fyrirtækja að korthafar séu ánægðir, því þáttaka í World for 2 er ekkert annað en hluti af markaðssetningu fyrirtækisins. Þannig hafa allir hag af World for 2.

Hvað kostar aðildin?
Árgjald í World for 2 er kr. 4.500.
Endurnýjun á aðild kostar kr. 3.900
*Póstkostnaður er ekki innifalinn í verði.

Starfsmenn:
Arnar Arnarson Framkvæmdastjóri 
Netfang: worldfor2@worldfor2.is

Svava Þ. Árnadóttir Þjónustustjóri
Netfang: svava@worldfor2.is

World for 2 - Gullmark ehf
Mánalind 12, 201 Kópavogur.
kt: 470794-2249
vsk. nr. 43200